Síðast uppfært: 26.05.2025
Þessir skilmálar gilda um notkun á vefnum Ferilskrá.is, sem er rekin af VG tæknilausnir ehf., kt. 681212-1080, með heimilisfang að Hesthömrum 14, 112 Reykjavík. Með notkun vefsins og kaupum á þjónustu samþykkir notandi þessa skilmála.
Ferilskrá.is veitir stafræna þjónustu þar sem ferilskrá er útbúin út frá þeim upplýsingum sem notandi slær inn í rafrænt eyðublað. Ferilskráin er afhent í PDF formi eftir greiðslu.
Greiðsla fer fram með greiðslutengli í gegnum örugga greiðslugátt Straums. Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og með virðisaukaskatti ef við á. Engar áskriftir eru í boði – aðeins eingreiðslur.
Ferilskráin er afhent sjálfvirkt innan 1–10 mínútna frá greiðslu, annaðhvort með tölvupósti eða niðurhalstengli. Ef bilun kemur upp eða tafir verða, verður haft samband innan 24 klukkustunda.
Notandi ber fulla ábyrgð á því að slá inn réttar, fullnægjandi og uppfærðar upplýsingar í eyðublað vefsins. Ef rangar eða óljósar upplýsingar eru gefnar, og það hefur áhrif á útkomu ferilskrárinnar, er ekki veitt endurgreiðsla.
Endurgreiðsla er einungis veitt ef:
Beiðni um endurgreiðslu þarf að berast innan 14 daga. Sjá einnig endurgreiðslustefnu.
Smávægilegar breytingar á ferilskránni eru heimilar án endurgjalds að hámarki 2 skipti innan 12 klst frá móttöku skjals. Viðbótarbeiðnir eða seinni breytingar geta verið gjaldskyldar.
Notandi á innihald ferilskrárinnar, en VG Tæknilausnir ehf. heldur höfundarrétti að sniðmáti, hönnun og skipulagi skjalsins. Óheimilt er að afrita eða selja áfram sniðmátið.
Persónuupplýsingar og ferilskrár eru geymdar tímabundið í allt að 30 daga í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og reglugerð ESB (GDPR). Eftir það er gögnunum eytt varanlega.
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Komi upp ágreiningur skal hann borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur.